Málleysi
05.12.2005 13:06:40 / sigga

Desember

jæja nú eru alveg að koma jól og tíminn þeytist áfram eins ég veit ekki hvað.  Rúmar 2 vikur þangað til að Árni kemur á klakann aftur og í þetta sinn með Frans með sér.  Verðum í góðu yfirlæti til skiptis í Kjarrhólmanum eða í Mosósvítunni hennar Ellu.  Annars átti ég ótrúlega skemmtilega helgi.  Hitti hann Arnþór minn á föstudaginn eftir mörg ár og huggðum við okkur saman yfir grilluðum borgara.  Alveg eins og við höfðum sést í gær og þráðurinn tekinn upp að nýju.  Á laugardagskvöldið var skvísukvöld hjá okkur stelpunum.  Borðuðum rosa góðan mat saman, ég, Ella, Ása og Hulda.  Síðan voru hláturtaugarnar kitlaðar að vanda og hækkað aðeins í Pixies.  Sem sagt eðal kvöld.  Kúlukúrinn okkar stækkar og stækkar og virðist ætla að verða orkubolti ef má dæma útfrá spörkunum.  Það er alltaf reynt að hitta í blöðruna eða rifbeinin, bara svona til að stríða.... Hehe.  Ég held áfram að stækka í eina átt virðist vera...áfram.  Hlýt að fara að missa jafnvægið bráðum og detta fram fyrir mig.  Skulum nú samt vona ekki.. :)  Annars er allt í góðum málum á Íslandinu góða, seisei og sveimérþá.  Kveð að sinni

» 97 hafa sagt sína skoðun

04.10.2005 15:53:44 / sigga

Þögn

Það er nú heldur betur langt um liðið síðan ég hef gripið í lyklaborðið og skrifað smá hérna inn.  Staðan í dag liggur einfaldlega á klaka vorum, rétt að loknum  yndislegasta septembermánuði í 180 ár.  Ég er öll farin inn í hversdagleikann með níu til fimm vinnu á teiknistofu í miðbænum.  Er bara nokkuð ánægð með að getað kallað mig hálfarkitekt og verið gáfuleg hérna með hinum á stofunni.  Allt er þetta yndælisfólk og mér líður eins og ég hafi alltaf unnið hérna.  Það er nú gott og blessað.  Já af öðru er ég búin að vera mjög upptekin við að vera til og kanna lífið í Reykjavíkinni ásamt úthverfunum.  Blómstra hlutirnir hérna hver í sínu horni og á sinn hátt.  Kvikmyndahátíðir og tónleikahald og listasýningar.  Já og svo auðvitað ekta íslenskar heimsóknir með kók í glasi og bros á vör.  Varð nú samt aðeins að taka upp danska dressið í gær og skellti mér á Kongekabalen á kvikmyndahátíð.  Afbragsmynd.  Klassískur þræðingur í gegnum spillingu hversdagsleikans hjá baunapólitíkusum.  Ég er nú að hugsað um að leggja fleiri orð inn á þessa síðu svona á næstunni svo að þið haldið ekki að ég sé steindauð, ef það er einhver eftir sem nennir að lesa....hehe.  Verð duglegri við að flytja fréttir af hálfarkitektinum.
  

» 102 hafa sagt sína skoðun

21.07.2005 10:11:42 / sigga

Heimsókn

Já nú eru ekki nema 3 vikur í brottför og ég er nú farin að hlakka svolítið til :) Hef í nógu að snúast þessa dagana.  Klára vinnuna mína til að geta skilað almennilega af mér.  Tók að mér smá þýðingarverkefni líka.  Svo er Óli frændi og Kidda að koma í heimsókn með litla snúllann sinn á föstudaginn.  Þau verða hjá okkur þangað til þau fá íbúðina sína í Köben.  Við hlökkum voða til að sjá þau.  Og sérstaklega litla Jón Gabríel þar sem við höfum aldrei séð hann.  Vona að það fari nú að hætta að rigna svona fljótlega þannig að við getum aðeins kíkt á ströndina og haft það gott í sólinni.  Og hver veit, kannski það verði tekin smá heimsókn í Legoland eða Sommerland!  Jæja verð nú að fara að gera eitthvað að viti hérna. Þangað til næst, adju. 

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.07.2005 07:48:35 / sigga

Landflótti

Nú er aðeins mánuður þangað til að maður flýr úr landi.  Veit ekki hversu góður sá landflótti er.. Beint í rigningu, kulda, stress og peningasjúkt þjóðfélag..Ekki nema von að útlendingar spyrja af hverju við viljum búa á þessu landi. haha.  En svo keppast þeir um í hrönnum að koma í heimsókn og skoða þetta undarlega land sem við eigum og lang flestir sjálfsagt yfir sig ánægðir með það :)  Það er ég svo sem líka.  Hlakka nú voða til líka, það er bara aðeins undarleg tilfinning að fara heim í svona langan tíma.  Ætli  maður sé ekki orðin ægilegur dani!  Maður veit það að það líða ekki nema nokkrir dagar heima og þá er eins og maður hafi aldrei farið fet út fyrir landið.  Allt komið í sama far og allt þetta nýja er orðið felt inn í minningarnar.  Og gamla góða Ísland stendur alltaf fyrir sínu og manni leiðist ekkert svarta skammdegið eða stresssjúkir jakkafatagaurar því það er partur af upprunanum.  Ætli við höfum ekki miklu meira af áhugaverðum upplifunum en neikvæðum.  Miklu meira af skemmtilegum minningum og framtíðarplönum en ömurlegum tilvistarkreppum.  Já ég get varla beðið, dreymdi meira að segja fjöll og skiptistöðina í Kópavogi í nótt.. Hlýtur að vera óbærileg tenging við æskustöðvarnar og íslenskt orkuflóð. :) Annars nóg um þessar pælingar.  Sara er búin að taka sig til og panta miða til Íslands í ágúst. Og Frans ætlar að koma og skoða íslenska fyrirbærið um jólin.  Þannig að við höfum helling að sýna og monta okkur af þegar þau koma og kroppa í klakann.  Og Hanna mín, til hamingju með að vera komin inní skólann í Köben.  Glæsilegt.  Nú verðuru bráðum löglegur bauni!  Nú verð ég að skella mér út í danska lífið hérna og njóta þess að eiga sumarfrí í mánuð í viðbót.  Bless í bili

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.06.2005 09:33:18 / sigga

Tilveran

Það var frábært að komast aðeins burtu frá aarhus.  Ég og Sara áttum eðal tíma saman í Köben.  Töltum um og shoppuðum, fórum á kaffihús og kíktum á sýninguna á Gammel Dok.  Áttum huggulegar stundir með strákunum, Frank, Kristo og Ørn sem leyfðu okkur að gista hjá sér.  Fórum á kokteilbar og áttum algjöran kvalititime.  Alveg nauðsynlegt að brjóta upp hversdagsleikan.  Skelltum okkur á Spot, musikfestivalið hérna í aarhus, um daginn líka.  Var ótrúlega gaman.  Svo tókum við Brynja okkur saman og héldum party fyrir afmælisbarnið hana Lindu á fimmtudaginn.  Vorum búnar að hóa saman nánustu vinum hennar og hún hafði ekki guðmund um það.  Hún var alveg í skýjunum með uppátækið í okkur og naut þess í botn held ég, á þakinu hjá okkur. Annars er skólanum formlega lokið, loksins og sumarfríið gengið í garð með sól og tilheyrandi.  Fór út á strönd í gær með Lindu en við tóruðum ekki svo lengi.  Það var svo kaldur vindur að við hypjuðum okkur heim.  Það var svona ekta íslenskur sumardagur hehe.  Maður verður að venja sig við áður en maður kemur heim :)  Hróarskelda komin í fullan ham og ég er að deyja mig langar svo að fara.  Árni var þar í gær að vinna og er með miða fyrir allt festivalið.  Ef einhverjum langar að bjóða mér á festivalið þá vitið þið hvar ég er :) knús í bili 

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.06.2005 09:45:46 / sigga

Hvað er málið????

Það er verið að gera upp íbúðir í næsta húsi á tveimur stöðum, sem reyndar var byrjað á fyrir allavega mánuði síðan.  Og þeir byrja hálfátta á morgnana með múrbrjótana á fullu!!! Halda síðan áfram alveg til 4 eða 5.  Er alveg að verða geðveik á þessu.  Langaði mest að skjóta þá útum gluggan í morgun.  Ef þetta eru venjulegir danir og vinna í slow motion þá verða þeir örugglega að þessu fram á haust!  AAARggggg.  Maður heyrir ekki í sjálfum sér hérna inni.  Jæja , slaka slaka.  úff.  Ætla að stinga af til Köben í dag.  Hitti Söru þar og við ætlum að spóka okkur í tvo daga.  Jeiii . Tveir múrbrjótslausir dagar. 

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.06.2005 10:20:07 / sigga

Íslandsferð

Þá er maður vaknaður til lífsins eftir skólasveittan tíma.  Loksins er verkefninu lokið og allt fer að vera reddí fyrir sumarið.  Ég er nýkomin heim frá Hollandi þar sem við kíktum og nokkur hús með skólanum.  Æðisleg ferð.  Þvílíkt pressuð dagskrá eins og þeim einum er lagið í arkitektaskólanum!  Þannig að frá morgni til kvölds var stikað á milli bæja til að ná eins miklu og mögulegt var.  Alltsaman þess virði held ég bara.  Og svo er Siggan bara á leiðinni til klakans!  Í lengri tíma í þetta sinn.  Kem heim 11.ágúst og fer ekkert aftur fyrr en á næsta ári!! Hehe. Kannski kominn tími til að taka langt stopp.  Er að fara í praktik á íslenskri teiknistofu í 4 mánuði.  En Árninn verður bara með fyrstu tvær vikurnar.  Ætlar að taka smá sumarfrí með mér heima og svo stika beint til DK aftur og vinna.  Hlakka voða til að kúra á klakanum í haust.  Ágætis tilbreyting.  Skólinn er við það að verða búinn, á bara eftir 2 vikur.  Mest bara chill samt eftir.  Ætla að lesa aðeins og módelast eitthvað.  Svo er það bara að vinna smá fyrir vasapeningunum :lol: Hlakka til að sjá ykkur heima

knús í bili


» 84 hafa sagt sína skoðun

25.04.2005 14:21:44 / sigga

Vitleysa

Þá er kominn mánudagur eina ferðina enn.  Að þessu sinni eftir langa helgi sem var þarfaþing svona til að endurhlaða batteríin.  Sólin skein alla helgina og það læddist að manni svona sumarfílingur...þangað til að köld golan blés í fésið á manni.brrr.  Allt að koma samt og fljótlega getur maður parkerað treflinum og vettlingunum!  En nóg er búið að vera að gera á þessum bænum - erum hreinlega alveg að deyja úr tímaleysi híhí - Höfum verið dugleg að skólast og vinna og svo höfum við líka verið vinarleg síðustu vikur :)  Nóg af matarboðum og skemmtilegheitum með vinunum.  Við Brynja og Linda tókum á því um daginn og höfðum Dekurdag Castenskiold.  Nudd, hand og fótsnyrtingar, make-up og hárstyling, kampavín og jarðaber og svo matur og sluttað með massa  af koteilum í bænum.  Frábær dagur/kvöld og kannski nótt hehe.  Gleymist seint.  Nú er hún Sara mín komin heim frá Mexico og ég fór nú og heilsaði upp á hana á laugardaginn.  Æðislegt að fá hana aftur heim.  Það verður fljótlega mexkvöld hjá okkur bara svona til að rifja upp dekurdagana sem við áttum úti.  Annars er bara mánuður í skil í skólanum og ekkert verið að slóra þar.  Okkur er haldið alemennilega við efnið og séð til þess að við eigum nú engan auka frítíma til að láta okkur leiðast!!  En tíminn líður þvílíkt hratt og þetta verður búið áður en maður veit af.  Þarf líka að fara að kíkja á hvenær ég ætla að heimsækja klakann í sumar :)  Verð nú að fara láta sjá mig þetta gengur ekki lengur!! þangað til næst - farvella


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.04.2005 16:36:31 / sigga

bloggleysi

já maður er búinn að vera latur að skrifa. Aðallega vegna þess að það er búið að vera svo mikið að gera í skólanum og vinnunni.  En kláraði mellem kritik í dag svo nú hef ég smá rúm til að anda.  Allt í gúddí hérna annars , sólin skýn svona öðru hverju og það er vor í lofti.  Held að það sé ekkert langt í strandparty og grill á þakinu !! :)  Annars er Aarhus búin að vera í dvala held ég, allt að koma til þó og fólk að skríða undan sænginni og sýna á sér fésið svona úti á mannamótum þó ekki væri annað. Ætlum að hitta Mari Ann og Ingebrik í kvöld og hafa það "Huggulegt" svona eins og maður segir á góðri íslensku :)  Annars verð ég bara að skrifa seinna þegar ég hef eitthvað að segja híhí

kveðjur í bili


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.03.2005 11:51:50 / sigga

páskaflensa

Þá er maður lagstur eins og hinir!  Fjandans flensan búin að klófesta mig og maður er bara alveg ónýtur!!  Og það á versta tíma.  Ég sem átti að fara að borða með fullt af arkitektum í gærkvöldi í sambandi við sýninguna okkar sem var haldin í gær og í dag.  En það verður að hafa það - var örugglega bara leiðinlegt.... :(  En það eru allavega að koma páskar og smá rólegheitatími framundan.  Langar samt mest að fara eitthvað í frí.  Maður er alltaf að kvarta!!  Vorið hlýtur að fara að detta innúr dyrunum hvað úr hverju.  úff hef enga orku í dag - látum þetta gott heita í bili


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.03.2005 17:49:07 / sigga

Þreyttur þriðjudagur

Nú er helgin liðin og mar er svolítið þreyttur eftir þetta allt saman.  Á föstudaginn fór ég á tónleika á Voxhall með Spleen United og Delicia Mini. Þetta var bara algjör snilld.  Frábær bönd og skemmtileg stemning.  Eftir tónleikana skáluðum við aðeins fyrir Árna og afmælinu hans og lulluðum svo niður á Kupé og skáluðum aðeins meira :)  Á laugardaginn var svo hið margfræga Dallasparty hjá stelpunum. Þar var margt um manninn og maðurinn margfaldur....  Sem sagt ca 5 stykki af Pemelu, 2 Sue Ellen og nokkrir JR og svo framvegis.  Er ekki frá því að það urðu 10 Pemelur og 4 Sue Ellen eftir að fór að líða á kvöldið....  Eða kannski sá ég bara tvöfalt... :)  En þetta var hið besta party með Cowboyþemanu alveg í botni.  Þið getið litið á myndirnar til að vita hvað ég meina.  Eða til að rifja upp kvöldið fyrir ykkur sem voruð þar :) Sem sagt bara snilld.  Á sunnudaginn var svo skellt í kökur í þynnkunni og kaffi svona handa Árna og þeim sem litu við.  Svo kláruðum við þessa afmælishelgi með humar og nautasteik að hætti hússins.  Ekki slæmt.  En nú er bara að nota restina af vikunni til að jafna sig og reyna að skólast eitthvað að viti.  Takk fyrir helgina allir saman :)


» 93 hafa sagt sína skoðun

03.03.2005 16:17:33 / sigga

ammmmælisdót

Skellti inn smá link á myndirnar frá helginni.  Svona er þetta net maður talar ekki saman lengur.  Maður bara bloggast en varla emailast lengur. Hvað þá eitthvað annað!! Ætli það endi ekki bara þannig að maður fer aldrei út og hittir aldrei neinn - situr bara stjarfur fyrir framan tölvukubbinn sinn!  Annars var ég í gjafainnkaupum.  Kláraði 4 afmælisgjafir í dag takk fyrir!  Mesti afmælishelgi ársins held ég barasta.  Ætli maður verði ekki að skella í köku fyrir kallinn svona í tilefni dagsins...úff - ekki mesti bakarinn.  Held ég láti það bíða fram á sunnudag þegar teitin eru yfirstaðinn! Gleðilega afmælishelgi allir saman bíbararararei

» 92 hafa sagt sína skoðun

01.03.2005 15:55:22 / sigga

Dallas og kokteilar

Það snjóar endalaust hérna - Þetta er orðið alveg óþolandi.  Maður þyrfti eiginlega að finna sér skíðagleraugu til að geta hjólað eitthvað hérna.  Það sést ekki útúr augum.  Hvar er bíllinn minn???  Erum annars í einhverri tilraunastarfsemi í skólanum núna með ljós.  Erum með tvo litla glugga með tveim lögum af gleri hvor um sig og við eigum að troða einhverju á milli glerjanna þannig að ljósið skíni í gegnum draslið!! I=I  Ok allt í gúddí og svo urðum við auðvitað að byrja á því að gera gat í álramman til að komast á milli.  Jújú við þustum á verkstæðið og vorum voða vígalegar með bor og sagir og tangir.  Og okkur tókst sem sagt að vera aðeins of vígalegar og brutum báðar rúðurnar!!  Breyttum bara þemanu aðeins hjá okkur og útskýrum bara að sprungur í rúðunum hefur áhrif á ljósið líka...Annars vorum við að blanda saman olíu og uppþvottalegi og ætlum að troða steinselju inn í þetta líka..  Og þetta er Arkitektaskólinn??? híhí Gaman af þessu.  Annars auglýsi ég eftir myndum frá laugardagskvöldinu.  Við gellurnar tókum lagið í SingStar og botnuðum koteilana allt kvöldið.  Þetta Singstar er nú meira svindlið - mitt lið fékk bara einhver hræðileg lög sem enginn hefur heyrt áður!! Já sem sagt...við töpuðum!  Annars prýðiskvöld sem endaði með danstjútti á Römer.  Og hvað var með DJinn þar?? Alveg í hlýrabolnum með aflitaða hárið sem hann var búin að vera að slétta alveg í 7 klukkutíma áður en hann mætti í vinnuna.  En tónlistin var fín og það voru bólgnar táslur sem dróust heim á leið að kvöldi loknu.  Svo er bara að finna Dallasgírinn fyrir næstu helgi!  Helga, Guðrún Gyða og Svala halda Dallasammmæli á laugardaginn með tilheyrandi svingi.  "Ég vildi ég væri Pamela í Dallas vohooo" 

» 95 hafa sagt sína skoðun

24.02.2005 10:54:22 / sigga

Loksins myndir

Nú er það koteilboð á laugardaginn með hælum og glimmeri.  Krissa býður til teitis í Trøjborg einungis ætlað stúlkukindum.  Þetta verður ágætishressing svona í miðjum snjóstorminum.  Og ekki má gleyma Sölku Sól sem heldur upp á fyrsta afmælið sitt um daginn með kökum og græjum.  En núna er ég loksins búin að setja myndir inn frá Mexico ef ykkur langar að skoða.  Þær liggja undir fleiri myndir.  Ég valdi ca 1/4 af myndunum sem við tókum... það er svona þegar maður á nýja myndavél!!!  Það liggja líka einhverjar myndir á síðunum hjá Susanne og Söru Ped. Videoin verða að vera sýnd seinna :)  En ég get ekki eytt meiri tíma í svona vitleysu verð að halla mér að skyssunum mínum og vera dugleg.

Tarha


» 92 hafa sagt sína skoðun

11.02.2005 14:35:08 / sigga

Back 2 real life!!

Úff það er erfitt að vera komin í kuldann og gráan hversdagsleikann.  Langar mest að hoppa upp í flugvél aftur og stinga af héðan.  En maður verður að sætta sig við það að svona getur maður ekki lifað lífinu.  Ég hlýt að geta búið til eina margarítu eða svo og skoðað myndir hehe.  Grenjgrenj - ok nóg um það.  Sem sagt skólinn kominná fullt aftur og þýðir ekkert að kúra undir sæng og væla meira.  Það er málið að byggja skrifstofuhúsnæði og hafa það eins náttúrulegt og maður getur.  En hvað er náttúrulegt við skrifstofu ég bara spyr??  Svo á þetta að vera fyrir framtíðina.  Já að sjálfsögðu, ekki hönnum við fyrir fortíðina eða hvað??  Ok prófa að vera smá jákvæð hérna Sigga mín!!  :)  Er einhver sem hefur skoðanir á skrifstofusvæði framtíðarinnar?  Í hvernig umhverfi mundu þið vilja vinna í?  Hvað er það sem þið saknið þegar þið eruð í vinnunni?  Eða í skólanum?    Öll heilabrot vel þegin !


» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3